» » Páll Torfi Önundarson - Jazzskotin Stef Og Söngdansar

Páll Torfi Önundarson - Jazzskotin Stef Og Söngdansar download mp3 flac


Performer: Páll Torfi Önundarson
Genre: Jazz
Album: Jazzskotin Stef Og Söngdansar
Released: 2005
MP3 version ZIP size: 1432 mb
FLAC version RAR size: 1351 mb
WMA version ZIP size: 1195 mb
Rating: 4.7
Votes: 280
Other Formats: FLAC DMF MP3 AIFF ASF DTS AC3


Tracklist Hide Credits

1 Ensk Manvísa Frá 14. Öld
Lyrics By – Magnús Ásgeirsson
3:17
2 Í Gömlum Skoda 3:04
3 Kristnir Menn Og Márar 4:22
4 Hinn Elskulegi Garðyrkjumaður 3:29
5 Vetrarmorgunn 4:24
6 Um Verkun Saltfisks 3:32
7 Nærmynd 3:44
8 Stökur (Enginn Grætur Íslending)
Lyrics By – Jónas Hallgrímsson
3:04
9 Ferrari 3:46
10 Skilnaður 6:04
11 Undirrót Allra Lasta
Lyrics By – Hallgrímur Pétursson
3:38

Companies, etc.

  • Distributed By – Zonet ehf

Credits

  • Voice – Ellen Kristjánsdóttir, Kristjana Stefánsdóttir, Páll Óskar, Ragnheidur Gröndal

Notes

Út er komin ný plata með Páli Torfa Önundarsyni, sem nefnist Jazzskotin.
Hér flytur Páll Torfi eigin lög við ljóð og texta ýmissa höfunda.
Hljóðfæraleikarar eru, auk Páls sjálfs, sem leikur á gítar, Tómas R. Einarsson (kontrabassi), Matthías Hemstock (ásláttur), Eyþór Gunnarsson (píanó), Jóel Pálsson (sópran- og tenórsaxófónar), Þórður Árnason (gítar) og Þórir Baldursson (Hammond-orgel). Söngvarar eru Ellen Kristjánsdóttir, Kristjana Stefánsdóttir, Páll Óskar Hjálmtýsson og Ragnheiður Gröndal.
Upptökur og hljóðblöndun fóru fram í hljóðveri FÍH, upptökustjóri Þórir Baldursson. Útgefandi er Dr. Blood, dreifing Zonet.

Ensk manvísa frá 14. öld við lag Páls Torfa. Þýðandi ljóðsins er tilgreindur Magnús Ásgeirsson (1901-1955). Glöggur lesandi og tónlistarunnandi veitti því eftirtekt að orðum hefur verið hnikað til í flutningi á geislaplötunni og í meðfylgjandi textabæklingi. Vakti hann athygli Morgunblaðsins á málinu.
Í bókinni Ljóð frá ýmsum löndum, í þýðingu Magnúsar heitins Ágeirssonar, sem kom út í Reykjavík 1946 er ljóðið Manvísa á bls. 159. Það er sagt eftir óþekktan enskan höfund á 14. öld. Manvísan þannig í þýðingu Magnúsar:

Hún, ástin mín, hún kann
á klæðum valið,
og kjóla á hún fleiri
en fái eg talið.
Og hvern sem í hún fer,
jafn-fögur er hún,
- en yndislegust samt,
er engan ber hún.

Í bæklingi sem fylgir geislaplötu Páls Torfa er vísan þannig skráð:

Hún ástin mín hún kann
á klæðum valið
og kjóla á hún fleiri
en fæ ég talið
Og hvern sem hún fer í
jafn fögur hún er
en yndislegust samt
er engan hún ber

Það er Páll Óskar Hjálmtýsson sem syngur vísuna á geislaplötunni. Hann víkur frá textanum í bæklingnum og syngur:

Hún ástin mín hún kann
á klæðunum valið.

Páll Torfi Önundarson var spurður hvers vegna vísunni hafi verið breytt.

"Þetta eru örlitlar breytingar gerðar til að vísan félli þéttar að laglínunni og rytminn yrði réttur," sagði Páll Torfi. Hann segir að sér hafi þótt breytingin svo lítilvæg að ekki tæki því að hafa samband við afkomendur Magnúsar heitins. Hann hafi látið nægja að skrá textann sem höfundarverk Magnúsar.

Barcode and Other Identifiers

  • Barcode: 5 690963 504230